Hægt er að greiða fyrir vörur með kreditkorti og debetkorti.
Ef viðskiptavinur er ekki innan höfuðborgarsvæðisins er farið með vöruna á Póstinn og það er sent á kostnað móttakanda.
Hægt að koma og sækja vöruna í verslun okkar að Mörkinni 1 (kjallara), 108 Reykjavík eftir að greiðsla hefur farið fram.
Þegar pöntun hefur verið gerð á trampolin.is má reikna með að varan sé komin til viðskiptavins eftir 1-3 virka daga.
Trampolin.is tekur ekki ábyrgð á að viðskiptavinir séu með rétt merkta póstkassa eða póstlúgur, í þeim tilfellum þar sem merkinga er ábótavant mun flutningsfyrirtæki senda pöntuna til baka og lendir tilfallandi kostnaður á viðskiptavini.
Trampolin.is ber ekki ábyrgð á tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi og gilda afhendingar-, ábyrgðar- og flutningsskilmálar flutningsfyrirtækja um afhendingu vörunnar.
Þegar greitt er með korti fer færslan í gegnum örugga greiðslusíðu Borgunar og fær trampolin.is engar kortaupplýsingar viðskiptavina.
Öryggisskilmálar: Upplýsingar um korthafa eru ekki gefnar upp til þriðja aðila.
Skilafrestur er 14 dagar frá frá kaupdegi. Einungis er hægt að skila vörum sem eru ónotaðar og/eða enn í óuppteknum upprunalegum umbúðum og þarf kvittun fyrir vörukaupunum að fylgja með.
Endurgreiðsla er framkvæmd að fullu ef ofangreind skilyrði eru uppfyllt innan 7 virkra daga og innleggsnóta gefin út innan 14 daga. Endurgreiðsla fer fram þegar varan er komin aftur til baka í verslun okkar. Flutnings- og póstburðargjöld eru ekki endurgreidd.
Þessi ákvæði og skilmálar er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir íslenskum dómstóli.
Síðan er í eigu og rekin af KG ehf., Mörkinni 8, 108 Reykjavík og er allur texti og myndir eigu KG ehf og er ekki ætlaður til afritunar eða endurbirtingar.